Félagsstarf í Skaftárhreppi er af ýmsum toga. Þar leggur hver íbúi til það sem hann hefur fram að færa. Nokkrar samkomur eru haldnar árlega og er það þá ýmist nefndarmenn á vegum sveitarfélagsins, félagsmenn í félögunum eða áhugafólk sem sér um atburðina. Nokkrar slíkar samkomur má nefna. Þorrablót er haldið á Klaustri og í félagsheimilinu Tunguseli, sumardeginum fyrsta er fagnað á Klaustri, boðað er til samkomu á Klaustri og í Tunguseli á þjóðhátíðardaginn. Réttir eru í öllum gömlu hreppunum og mæta þar allir sem vettlingi geta valdið. Á haustin hefur svo verið haldin Uppskeru- og þakkarhátíð um mánaðamótin október og nóvember og svo er jólamarkaður í nóvember og jólatréskemmtun fyrir börnin milli jóla og nýjárs. Á gamlárskvöld koma sveitungarnir saman við áramótabrennu á Klaustri og Björgunarsveitin heldur glæsilega flugeldasýningu. Ýmislegt fleira er á döfinni sem fer eftir áhuga og elju íbúa hverju sinni.
Hér eru talin upp þau félög sem eru starfandi | Upplýsingar um félagið á vef eða fb.síðu | Er félagið opið nýjum félögum? |
---|---|---|
Björgunarsveitin Kyndill er með aðstöðu á Klaustri. | Björgunarsveitin Kyndill | já |
Björgunarsveitin Stjarnan er með aðstöðu í Gröf í Skaftártungu | Björgunarsveitin Stjarnan | já |
Kvenfélagið er opið konum í Skaftárhreppi en flestar búa í Landbroti og á Klaustri | Kvenfélag Kirkjubæjarhrepps | já |
Kvenfélagið var stofnað af konum í Hörgslandshreppi en er opið öllum konum | Kvenfélagið Hvöt | já |
Hestamannafélagið Kópur er opið öllum | Hestamannafélagið Kópur | já |
Ungmennafélagið stendur fyrir æfingum fyrir börn og fullorðna, úti og inni. | Ungmennafélagið Ármann | já |
Ungm.fél Skafti í Skaftártungu og Álftaveri | Ungmennafélagið Skafti | já |
Félagið hefur aðstöðu á Klaustri en er opið fólki úr öllum hreppnum | Félag eldri borgara | já |
Skógræktarfélagið Mörk, félagið er hluti af Skógræktarfél. Ísl | www.skog.is/skograektarfelagie-moerk/ | já |
Rauði kross Íslands. Klausturdeild. | www.raudikrossinn.is | já |
Maður er manns gaman!