Framtíðarsýn skiptir máli í hverju því sem við tökum okkur fyrir hendur. Það vita íbúar í Skaftárhreppi þar sem sveitarstjórnin, ásamt fleirum, hefur unnið að því að móta stefnu um hvert sveitarfélagið vill stefna. Framtíðarsýn Skaftárhrepps er; að verða eftirsóknarvert sveitarfélag þar sem heiðarleiki, samheldni, jafnræði, gagnkvæm virðing og bjartsýni einkenni öfluga uppbyggingu. Samstarf einkenni samfélagið og íbúar séu jákvæðir og umburðarlyndir.
Skaftárhreppur var eitt af þeim sveitarfélögum sem flokkaðist undir að vera Brothætt byggð fyrir fáum árum og var verkefninu valið nafnið Skaftárhreppur til framtíðar. Það var mikil fólksfækkun í hreppnum og lítil atvinna en þar hefur nú orðið mikill viðsnúningur. Sveitarstjórn Skaftárhrepps hefur ákveðið að horfa til framtíðar og nýta þá meðgjöf sem verið hefur á öllum sviðum. Ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið að hafa Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna til hliðsjónar við mótun framtíðarsýnar og því var eðlilegt að sveitarfélagið gerði það líka. Sveitarstjórnin fékk til liðs við sig Evu Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra og stjórnendaráðgjafa hjá Podium ehf. Hér á eftir verður í stuttu máli sagt frá hver var afrakstur þessarar vinnu.
Heimsmarkmið sameinuðu þjóðanna eru mörg og vinnan fólst í því að velja á hverju við viljum byrja hér í Skaftárhreppi. Haldnir voru vinnufundir til að ræða málin. Það er mikilvægt að horfa yfir sviðið og velta fyrir sér í byrjun hvaða gildi fólk telur mikilvægust, áður en farið er að ræða hvað við viljum gera. Gildi er víðtækt siðferðilegt hugtak um verðmæti sem einkenna samfélög og einstaklinga. Best er að skýra merkingu orðsins gildi með því að hugsa til mismunandi samfélaga í heiminum. Eru sömu gildi í Kóreu, Kenía eða Kirkjubæjarklaustri? Gildi geta tekið mið af trú og hefðum og enduspegla verðmætamat samfélagsins. Þau gildi sem valin voru í Skaftárhreppi eru:
- Virðing. Að við berum virðingu fyrir mismunandi skoðunum og hvert fyrir öðru, hver sem við erum og hvaðan sem við komum. Það er líka mikilvægt að bera virðingu fyrir náttúrunni og þeim auðlindum sem við eigum.
- Jákvæðni. Það verður allt léttara ef við erum jákvæð. Það segir ekki að allt sé í himnalagi en við getum tekist á við að leysa vandamál með jákvæðum huga og njóta þess sem vel er gert.
- Samstaða er mikilvæg og þar komu mörg önnur orð sem hafa svipaða merkingu eins og samvinna, samhygð og samheldni sem sýndu að þeir sem komu að vinnunni töldu mjög mikilvægt að íbúar vinni saman.
- Sjálfbærni merkir að við viljum styðja við sjálfbæra þróun atvinnulífs og vera rammi fyrir samfélag þar sem allir eiga jafna möguleika á að vaxa og dafna.
Þegar búið var að velja gildin var farið að skoða hvaða heimsmarkmiðum SÞ við viljum vinna að í byrjun. Valin voru fjögur markmið:
Heilsa og vellíðan. Þar er átt við að gæta þess að heilsugæslan, stofnanir fyrir börn og eldri borgara vinni að því að bæta heilsu og vellíðan. Aðstaða til íþróttaiðkunar er góð í hreppnum en alltaf má bæta aðstöðu og hvetja íbúa til að bæta eigin heilsu og vellíðan.
Nýsköpun og uppbygging. Grunnur að hverju samfélagi er að það sé vinna fyrir þá sem þar búa. Mikil uppbygging hefur verið síðustu ár, flest tengist ferðaþjónustu en margir aðrir möguleikar eru í sjónmáli. Þekkingarsetur rís á Kirkjubæjarklaustri innan skamms og þar með verða til margir möguleikar til vaxtar og samvinnu.
Sjálfbærar borgi og samfélög. Fólki var umhugað um að samfélagið verði byggt upp þannig að það ekki sé gengið á auðlindir og að flokkun og endurvinnsla sorps verði sem best. Í vinnu við nýtt aðalskipulag verði ávallt haft í huga að gæta að náttúru, menningarminjum og náttúruvættum í umhverfi okkar. Skaftárhreppur mun vinna að þessu markmiði í samvinnu við Vatnajökulsþjóðgarð og Kötlu jarðvang.
Aðgerðir í loftslagsmálum. Skaftárhreppur er mjög stór og þar er kjörið land til skógræktar sem er mikilvæg leið til að vinna gegn loftslagsbreytingum. Einnig vill Skaftárhreppur vinna að því að hér verði losun gróðurhúsalofttegunda í lágmarki og beita sér fyrir því að nýta endurvinnanlega orkugjafa.
Það er gefandi fyrir alla að taka þátt í að móta samfélagið. Skaftárhreppur hefur stigið fyrsta skrefið í þeirri vegferð að vinna eftir heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna til að bæta líf okkar allra í Skaftárhreppi til framtíðar.
Lilja Magnúsdóttir
Kynningarfulltrúi Skaftárhrepps