Héraðsbókasafnið Kirkjubæjarklaustri er í glæsilegu húsi sem er sambyggt Kirkjubæjarskóla. Bókasafnið tók til starfa í þessu húsi 1988 en hafði áður verið í rými við matsal skólans. Héraðsbókasafnið er bæði skólabókasafn og ætlað almenningi. Bókakosturinn er mjög góður og keyptar inn allmargar nýjar bækur á hverju ári. Einnig hafa nokkrir íbúar í Skaftárhreppi og brottfluttir arfleitt safnið að stórum bókasöfnum.
Opnunartími
Miðvikudaga 16:30 - 19:00
Fimmtudaga 11:00 - 13:30
Forstöðumaður: Björk Ingimundardóttir
Netfang: bokasafn@klaustur.is
Sími: 487 4808
Heimilisfang: Klausturvegur 4, 880 Kirkjubæjarklaustur