24. ágúst, verður opnað fyrir umsóknir um styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða vegna framkvæmda á árinu 2023. Umsóknarfrestur er til kl. 13 miðvikudaginn 5. október.
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.
Sjóðnum er heimilt að fjármagna framkvæmdir er snúa að:
Hins vegar er sjóðnum ekki heimilt m.a. að:
Ýtarlega er farið yfir umsóknarferlið og þau skilyrði sem þarf að uppfylla á sérstakri umsóknarsíðu hér á vefnum en sjálft umsóknarformið er á island.is. Meðal annars kemur fram að umsóknir geta fallið í annan eftirfarandi flokka eftir eðli verkefnisins:
Væntanlegir umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel þau lög sem gilda um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða nr. 75/2011 og reglugerð nr. 782/2017 og vanda umsóknir sínar í hvívetna. Umsækjendum er bent á að kynna sér vel gæðaviðmið sjóðsins sbr. gæðamatsblað ásamt ýmsum frekari upplýsingum sem finna má á umsóknarsíðu.
Nánari upplýsingar á vef Ferðamálastofu