Erla Þórey, landvörður, og Fanney, þjóðgarðsvörður, draga út vinningshafana.
Vatnajökulsþjóðgarður stóð fyrir metnaðarfullum ratleik í tengslum við Uppskeru- og þakkarhátíðina í Skaftárhreppi. Þátttakendur áttu að leita fjárrétta um alla sveit. Það var góð þátttaka og leiknum lokið. Sjá má á facebooksíðu Skaftárstofu þegar verðlaunahafarnir voru dregnir út. Verðlaunin voru í þremur flokkum: Stóra-Lat, Mið-Lat og Litla-Lat.. Vinninga má vitja á Skaftárstofu, gestastofu VJP sem er opin alla daga frá 09:00 - 15:30
Verðlaun fyrir Stóra-Lat:
Dót frá Random
Gönguleiðakort um Lakagígja, Langasjó og Eldgjá
Sápa frá Cafe Vatnajökull
Bókin: Our land frá Hrífunes gistiheimili
Gisting fyrir tvo á Hótel Laka
Jöklaganga með Glacier Adventure
Sigling á Fjallsárlóni
Útsýnisflug frá Atlandsflugi
Þeir sem unnu þessa flotta vinninga eru: Stefán Jónsson, Adrian Moskal, Magdalena Szeliska, Aron Hansen