Á 496. fundi sveitarstjórnar Skaftárhrepps, þann 14. septmber 2023. var lögð fram skýrsla Eflu, verkfræðistofu og kostnaðaráætlun Ráðbarðs, ráðgjafar og verkfræðistofu, vegna Félagsheimilisins Kirkjuhvols.
EFLA verkfræðistofa var fengin til að gera rakaskimun og taka sýni á völdum stöðum í byggingu Félagsheimilisins Kirkjuhvols. Skoðun á félagsheimilinu, fólst í sjónskoðun, rakaskimun með rakamæli, DNA sýnatökur úr ryki og byggingasýnatöku. Við ástandsskoðun kom í ljós að rakaskemmdir og rakaummerki voru víða. Öll byggingarsýni sem tekin voru reyndust mygluð.
Skýrsla EFLU, sýnir að ástand Félagsheimilisins Kirkjuhvols er í raun skelfilegt í alla staði og með réttu mætti segja að húsnæðið væri það illa farið að viðhaldsleysi og raka að það borgar sig ekki að gera við það.
Kostnaðargreining Ráðbarðs sf., byggir á fimm(5) forsendum, sem eru: Jarðvinna, lagnir, roforkuvirki, frágangur inni og frágangur úti.
Kostnaðaráætlum sem lögð var fram til kynningar gerir ráð fyrir kostnaði að upphæð um 193 milljónum og um 58 milljónum til viðbótar í hönnun og ófyrirséð, sem er varlega áætlað, eða kostnaði um 251 milljón til að gera félagsheimilið nothæft fyrir hlutverk sitt eða um 470 þúsund á hvern fermeter.