Fitness á trampólíni á Kirkjubæjarklaustri.
Kasia Korolzuk, íþróttakennari, býður upp á tveggja daga námskeið í fitness á trampólíni fyrir einstaklinga 15 ára og eldri. Námskeiðin verða haldin í Íþróttamiðstöðinni á Kirkjubæjarklaustri.
Um er að ræða þjálfun sem fer fram á sérstöku trampólíni sem m.a. styrkir vöðvana. bætir skilvirkni líkamans, dempar hreyfingu og léttir þannig á liðunum.
Námskeiðin eru tveggja daga og verða haldin 7. og 8. apríl kl. 19:30 - 20:30 og 9. og 10. apríl kl. 10:30 - 11:30
Verð fyrir fræðsluna er 3500 kr. Skráning og frekari upplýsingar í skilaboðum á facebook eða með tölvupósti: kasiakorloczuk@wp.pl