Nýju lóðirnar eru við læknisbústaðinn á Klaustri (Ljósm. LM)
SKAFTÁRHREPPUR auglýsir eftir tilboðum í gatnagerð á Læknisreit, Kirkjubæjarklaustri. Um er að ræða þrjár botnlangagötur alls um 300m að lengd. Skaftárhreppur áskilur sér rétt til að skipta verkinu upp í allt að þrjá áfanga. Fyrsti áfangi skal byggingarhæfur eigi síðar en 1.maí 2021.
Útboðsgögn má nálgast á netfanginu bygg@klaustur.is frá og með föstudegi 6.nóvember nk. kl. 10.00
Undirrituðum tilboðum skal skila á netfangið bygg@klaustur.is fyrir kl. 13.00 miðvikudaginn 25.nóvember nk.
Tilboð verða opnuð sama dag kl. 13.15 af undirrituðum og tveimur vottum.
Frekari upplýsingar veitir skipulags- og byggingarfulltrúi í bygg@klaustur.is eða síma 487-4840