Heilsuleikskólinn Kæribær á Kirkjubæjarklaustri
Leikskólakennara vantar í 100% starf í Heilsuleikskólann Kærabæ á Kirkjubæjarklaustri.
Leitað er eftir drífandi og metnaðarfullum einstaklingum til starfa á Heilsuleikskólann Kærabæ sem er staðsettur á Kirkjubæjarklaustri. Heilsuleikskólinn Kæribær er tveggja deilda leikskóli með heilsdagsrými fyrir börn á aldrinum eins til sex ára.
Menntunar og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er nauðsynnileg.
- Hæfni í mannlegum samskiptum og frumkvæði í starfi.
- Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
- Stundvísi og góð ástundun
- Hreint sakavottorð
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Umsóknum skal skilað til skólastjóra Heilsuleikskólans Kærabæjar á þar til gerðum umsóknareyðublöðum sem finna má á heimasíðu leikskólans http://kaeribaer.leikskolinn.is/Upplysingar/Starfsumsokn
Með umsókn skal fylgja ferilskrá, meðmælendur og afrit af leyfisbréfi auk sakavottorðs.
Umsóknir má einnig senda á netfang skólans leikskoli@klaustur.is eða í pósti merktar, Heilsuleikskólinn Kæribær, Skaftárvellir 5a, 880 Kirkjubæjarklaustur.
Nánari upplýsingar um leikskólann má finna á heimsíðu leikskólans http://kaeribaer.leikskolinn.is og hjá skólastjóra í síma 487-4803 eða 863-7546.
- Leikskólastjóri áskilur sér rétt til að hafna umsóknum sem ekki uppfylla þau skilyrði sem til þarf.
Hvetjum bæði karla og konur til að sækja um skemmtilegt starf.
Leikskólastjóri
Guðrún Sigurðardóttir