Heilsuleikskólinn Kæribær á Kirkjubæjarklaustri (Ljósm. LM)
Laust er til umsóknar tímabundið starf á Heilsuleikskólanum Kærabæ á Kirkjubæjarklaustri.
Um er að ræða:
- Tímabundin afleysing 100 % starf, frá 01.mars 2022 til 01. mars 2023.
Leitað er eftir drífandi og metnaðarfullum einstaklingum til starfa á Heilsuleikskólann Kærabæ sem er staðsettur á Kirkjubæjarklaustri. Heilsuleikskólinn Kæribær er tveggja deilda leikskóli með heilsdagsrými fyrir börn á aldrinum eins til sex ára.
Menntunar og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er nauðsynnileg.
- Hæfni í mannlegum samskiptum, faglegur metnaður og frumkvæði í starfi.
- Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
- Stundvísi og góð ástundun
- Hreint sakavottorð
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
- Vakin er athygli á því að ef ekki fæst leikskólakennari kemur til greina að ráða annað háskólamenntað fólk eða leiðbeinendur.
Umsóknum skal skilað til skólastjóra Heilsuleikskólans Kærabæjar á þar til gerðum umsóknareyðublöðum sem finna má á heimasíðu leikskólans http://kaeribaer.leikskolinn.is/Upplysingar/Starfsumsokn
Með umsókn skal fylgja ferilskrá, meðmælendur og afrit af leyfisbréfi auk sakavottorðs.
Umsóknir má einnig senda á netfang skólans leikskoli@klaustur.is eða í pósti merktar, Heilsuleikskólinn Kæribær, Skaftárvellir 5a, 880 Kirkjubæjarklaustur.
Nánari upplýsingar um leikskólann má finna á heimsíðu leikskólans http://kaeribaer.leikskolinn.is og hjá skólastjóra í síma 487-4802 eða 863-7546.
- Leikskólastjóri áskilur sér rétt til að hafna umsóknum sem ekki uppfylla þau skilyrði sem til þarf.
Hvetjum bæði karla og konur til að sækja um skemmtilegt starf.
Leikskólastjóri
Guðrún Sigurðardóttir