Þessi bíll fékk aðstoð frá verkstæðinu eftir að hafa fokið út af vegi við Lómagnúp
UniCars slf á Kirkjubæjarklaustri leitar eftir starfsmanni í fullt starf til að annast móttöku viðskiptavina á þjónustuverkstæði og önnur tilfallandi störf
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka viðskiptavina
- Innskráning bíla / tækja í viðgerð
- Móttaka og afgreiðsla varahlutapantana
- Símsvörun þjónustuverkstæðis
- Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð tölvukunnátta og reynsla af þjónustustörfum æskileg
- Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf
- Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í starfi
- Skipulögð og öguð vinnubrögð
- Íslenskukunnátta skilyrði, enskukunnátta kostur
UniCars slf er bílaverkstæði staðsett á Kirkjubæjarklaustri. Helstu verkefni eru viðgerðir á bílum, tækjum og vélum ásamt dráttabíla þjónustu og dekkjaviðgerðum.
Upplýsingar um starfið veitir Karl í síma 858-7657. Umsókn skal senda á netfangið karl@eldhraun.is