Auglýsingar v/skipulagsmála

Kynning á vinnslutillögu að nýju Aðalskipulagi Skaftárhrepps 2019-2031

Svæðisskipulag fyrir Suðurhálendið

Miðvikudaginn 24. nóvember 2021 var opinn kynningarfundur um svæðisskipulag Suðurhálendisins haldinn í félagsheimilinu Hvoli á Hvolsvelli.

Íbúðabyggð við læknisbústaðinn - breyting

Deiliskipulagsbreyting – Íbúðabyggð við Læknisbústað, Kirkjubæjarklaustri. Gerð er breyting á deiliskipulagi Læknisbústaðar sem samþykkt var 19.12.2019 og felur breytingin í sér að breyta tveimur einbýlishúsalóðum í tvær fjölbýlishúsalóðir og 3ja íbúða raðhúsalóð í 4ja íbúða raðhúsalóð. Skortur er á minna húsnæði á Kirkjubæjarklaustri sbr. húsnæðisáætlun Skaftárhrepps. Að öðru leyti gilda skilmálar úr gildandi skipulagi.

Fyrsta steypan í Gestastofu VJP

Fyrsti steypubíllinn kominn með steypu í grunninn fyrir Gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs við Kirkjubæjarklaustur.

Deiliskipulagstillaga - Hemrumörk

Skipulagstillagan liggur frammi á skrifstofu Skaftárhrepps, frá og með fimmtudeginum 23. september til og með 4. nóvember 2021. Tillöguna má líka skoða hér í þessari frétt.

Viltu losna við bílhræ eða brotajárn?

Næstu viku, viku 37, dagana 14.-17.sept nk. verða Hringrásarmenn á urðunarsvæðinu á Klaustri til að hreinsa upp brotajárn, bílhræ og aflögð tæki.

Tillaga að deiliskipulagi Klausturvegi 4 - athugasemdarfrestur til 30. júlí 2021

Nýtt deiliskipulag fyrir Klausturveg 4 er um 4,7 ha en deiliskipulagið gerir m.a. ráð fyrir viðbyggingum við skóla, nýjum leikskóla sem verður sambyggður skóla með tengibyggingu og Errósetri í framhaldi af þekkingarsetri.

Íbúafundur 8. júní 2021 - beint streymi

Fundurinn verður haldinn í fundarsal Þekkingarsetursins, Klausturvegi 4 kl. 20:00 - 21:30 Efni íbúafundarins er skipulag skólalóðarinnar á Klausturvegi 4.

Skipulagsbreytingar vegna virkjunar Hverfisfljóts við Hnútu

Virkjun í Hverfisfljóti við Hnútu - Aðalskipulagsbreyting. Breytingin á aðalskipulaginu felur í sér að Hnútuvirkjun er breytt þannig að í stað 40 MW virkjunar verður gert ráð fyrir 9,3 MW virkjun. Virkjun í Hverfisfljóti við Hnútu – Deiliskipulagstillaga. Um er að ræða nýtt deiliskipulag. Deiliskipulagið tekur til allra mannvirkja virkjunarinnar, bygginga, vega og annarra framkvæmda.

Auglýst er eftir tilboðum í sorphirðu í Skaftárhreppi

Skaftárhreppur óskar eftir verðum / leitar tilboða í sorphirðu tímabilið 1. júlí 2021-30. júní 2026