Niðurstaða 514. fundar sveitarstjórnar.
17.12.2024
- Sveitarstjórn Skaftárhrepps kom saman til fundar þriðjudaginn 17. desember 2024.
- Það helsta sem gert var:
- Sveitarstjórn samþykkti fjárhagsáætlun fyrir árið 2025 og fjárhagsáætlun áranna 2026, 2027 og 2028.
- Nokkrar lykiltölur og forsendur fyrir árið 2025:
- Rekstur fyrir fjármagnsliði árið 2025 er áætlaður jákvæður um 126. m.kr. Fjármagnsliðir eru áætlaðir um 40 m.kr. árið 2025.
- Rekstrarniðurstaða er áætluð jákvæð um 86 m.kr árið 2025.
- Veltufé frá rekstri er áætlað um 164,5 m.kr. árið 2025.
- Gert er ráð fyrir 513 m.kr. launakostnaði á árinu 2025.
- Tekjur eru áætlaðar um 1.218 m.kr. á árinu 2025.
- Gert er ráð fyrir lántöku að upphæð 200 m.kr. á árinu 2025.
- Afborganir langtímalána verði um 54 m.kr. á árinu 2025.
- Stefnt er að því að handbært fé verði um 52 m.kr. í árslok 2025. Langtímaskuldir munu hækka um 170 m.kr. á árinu 2025.
- Gert er ráð fyrir að fjárfest verði fyrir um 390 m.kr. á árinu 2025
- Sveitarstjóri lagði fram greinargerð sína, margt fróðlegt kemur fram í henni. Hér má sjá greinargerð:
-
Gengið var frá ráðningu slökkviliðsstjóra og ráðningu fjármálastjóra.
- Lögð var fram greinargerð um Klaustur - menningarhús. Hér má sjá greinargerðina:
-
Gengið var frá úthlutun refaveiðimanna á veiðisvæði, svo eitthvað sé nefnt.
Hér má sjá fundargerð:
Hér má sjá fundargögn:
-