Yfirlit frétta

Afmælishátíð Kirkjubæjarskóla á Síðu

Fimmtudaginn 2. júní nk. verður haldin vor- og afmælishátíð Kirkjubæjarskóla á Síðu. Skólinn varð 50 ára í október síðastliðnum en ekki var hægt að halda fjölmenna hátíð þá eins og allir vita. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, verður í opinberri heimsókn í Skaftárhreppi þann sama dag og mun hann heiðra okkur í skólanum með nærveru sinni milli kl. 12:25 – 13:10.

Vantar fólk til að veita aðstoð við daglegt líf og félagslegan stuðning

Félagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu óskar eftir að ráða starfsmann í stoðþjónustu

Götusóparinn mætir 30. maí 2022 á Kirkjubæjarklaustur

Götusópun á Klaustri 30. maí 2022

Verktaki eða þjónustuaðilar óskast til að sækja gáma og þjónusta fyrirtæki

Skaftárhreppur auglýsir eftir verktaka/þjónustuaðila sem hefur tæki og tól til að þjónustu grenndarstöðvar sorps í Skaftárhreppi frá 1.júní – 31.ágúst 2022. Einnig er auglýst eftir verktaka til að þjónusta fyrirtækin og leggur Skaftárhreppur til "gula bílinn".

Grenndarstöðvar tilbúnar í öllum sveitum

Núna eru grenndarstöðvarnar tilbúnar til notkunar og strákarnir sækja tunnurnar á næstu 3 dögum. Þurfum að sækja tunnur í Álftaver, Skaftártungu, Meðalland, Landbrot og á Klaustri og nágrenni.

Lukkulegur íbúi kaupir miða á óflokkað sorp og lífrænt

Skaftárstofa selur límmiða til að setja á sorppoka. Frá og með 23. maí 2022 á að merkja almennt sorp sem ekki er hægt að endurvinna með rauðum miða en lífrænt sorp með gulum miða. Annað efni fer í flokkunargámana og þarf ekki að merkja. Markmiðið er að flokka sem mest svo lítið þurfi að urða. Það er opið á Skaftárstofu í félagsheimilinu á Klaustri frá 9:00 - 15:30

Íþróttamiðstöðin og sundlaugin lokuð/closed 23. -29. maí 2022

Vegna viðgerða verður Íþróttamiðstöðin á Kirkjubæjarklaustri lokuð frá 23. maí til og með 29. maí. Verið er að lagfæra klefana og sundlaugina. Lokað er í líkamsræktinni líka. Due to repairs, the sports center at Kirkjubæjarklaustur will be closed from 23 May until 29 May. The cabins and swimming pool are being repaired. The gym is also closed.

Klausturhóladagurinn 4. júní 2022

4. júní 2022 á milli 14 - og 17 verður Klausturhóladagurinn. Þá er öllum boðið að koma á Hjúkrunar- og dvalarheimilið á Kirkjubæjarklaustri.

Sumarblómin til sölu á Klaustri, pantið fyrir 22. maí

Kvenfélagið Hvöt verður með blómasölu í næstu viku 23. maí - 27. maí á Klaustri. Panta þarf fyrir sunnuddaginn 22. maí 2022

Deiliskipulag á Efri-Ey II og III og Snæbýli I

Deiliskipulag – Efri Ey II og III, Skaftárhreppi – Ferðaþjónusta og tengd starfsemi. Deiliskipulag – Snæbýli I, Skaftárhreppi – Ferðaþjónusta.