Yfirlit frétta

Vantar þig starfsfólk? Vantar þig vinnu?

Atvinnurekendur geta auglýst eftir starfsfólki hér á klaustur.is. Einstaklinga sem vantar vinnu geta líka auglýst á klaustur.is Eina sem þarf að gera er að senda texta og mynd á kynning@klaustur.is Auglýsingunum er einnig dreift á facebooksíðum í Skaftárhreppi: Skaftárhreppur -klaustur.is og Atvinnumál í Skaftárhreppi Do you need staff? Do you need work? Employers can advertise for employees here on klaustur.is. An individual who need a job can also place an advertisement on klaustur.is All you have to do is to send a text and photo to kynning@klaustur.is The advertisements are also distributed on Facebook pages in Skaftárhreppur: Skaftárhreppur -klaustur.is and Atvinnumál in Skaftárhreppur

Vinnuskóli og vinna fyrir námsmenn sumarið 2021

Skaftárhreppur - vinnuskóli og sumarstörf fyrir námsmenn. Umsóknarfrestur til og með 21. maí 2021 Ungmenni sem eru að ljúka 7., 8., 9., og 10. bekk og eru með lögheimili í Skaftárhreppi eiga rétt á vinnu í vinnuskóla sveitarfélagsins sumarið 2020. Okkur vantar unga og öfluga námsmenn til starfa sem fyrst í sumarátaksstörf. Námsmenn þurfa að verða 18 ára (á árinu) eða eldri.

Viltu taka þátt í Kötlu jarðvangsviku?

Fögnum saman - Katla jarðvangsvika 10– 16.maí 2021 Hægt að vera með tilboð, afslátt, fræðslu eða kynningu, uppákomur, gönguferðir eða hvað sem er. Allt auglýst sameiginlega í dagskrá Jarðvangsvikunnar. Vinsamlega hafa samband 893-2115 / framtid@klaustur.is Celebrate the annual Geopark Week with us Plan an event, an offer, a celebration, concert, hike or share your favorite story with us Contact framtid@klaustur.is / 893-2115

Takk fyrir okkur - Baldvin Z

Kæru íbúar Kirkjubæjarklausturs, og nágrennis. Við þökkum kærlega fyrir okkur, tökur gengu vel, allir glaðir og kátir hjá okkur með þessa daga. Velvild og lausnir voru það sem standa uppúr eftir veru okkar í þessu fallega bæjarfélagi. Fyrir hönd Glassriver framleiðslufyrirtækis. Baldvin Z - leikstjóri.

Tvö tilboð bárust í byggingu gestastofunnar

Húsheild ehf í Mývatnssveit átti lægra tilboðið í byggingu gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Kirkjubæjarklaustri, tilboðið er 639,8 milljónir króna og var 13,6% yfir kostnaðaráætlun Framkvæmdasýslu ríkisins, sem er á 563,1 milljónir króna. Ístak hf bauð einnig í verkið og var tilboð félagsins upp á 793,2 milljónir króna. Í opnunarskýrslu frá Ríkiskaupum segir að hún feli ekki í sér niðurstöðu útboðs, endanlegt val geti ráðist af fleiri valforsendum samkvæmt útboðsgögnum.

Opnunartími gámavallar

Opið alla daga fyrir skil á heimilissorpi. Hægt er að ganga inn á gámavöllinn eða skila í endurvinnslubarinn. Gámavöllurinn allur er opinn og vaktmaður sem aðstoðar við flokkun: Þriðjudaga 10 til 14 Fimmtudaga 14 til 18 Laugardaga 10 til 14

Laust starf á Kærabæ á Klaustri

Laust er til umsóknar tímabundið starf á Heilsuleikskólanum Kærabæ á Kirkjubæjarklaustri. Um er að ræða tímabundna afleysingu 100 % starf, frá 3. ágúst 2021 til 1. nóvember 2022. Leitað er eftir drífandi og metnaðarfullum einstaklingum til starfa á Heilsuleikskólann Kærabæ sem er staðsettur á Kirkjubæjarklaustri. Heilsuleikskólinn Kæribær er tveggja deilda leikskóli með heilsdagsrými fyrir börn á aldrinum eins til sex ára.

Leikskólakennari óskast á Kærabæ á Klaustri

Leikskólakennari í 100% starf vantar til starfa fyrir skólaárið 2021-2022 í Heilsuleikskólann Kærabæ á Kirkjubæjarklaustri.

Nýsköpunarverkefni á Klaustri fékk 8,5 milljóna styrk

Markmið verkefnisins er að mæla kolefnisforða ásamt CO2 flæði úr þurrlendisjarðvegi valinna landgerða í Skaftárhreppi og þannig er hægt að áætla heildarlosun eða bindingu úr þessum vistgerðum með nokkuð góðri vissu. Um er að ræða ársverkefni, verkefnisstjóri er Rannveig Ólafsdóttir, sérfræðingur hjá Náttúrustofu Suðausturlands, sem hefur vinnuaðstöðu á Kirkjubæjarstofu - þekkingarsetri í Skaftárhreppi

Messa í Minningarkapellunni

Sunnudaginn 2. maí klukkan 14:00 verður messa í Minningarkapellu Sr. Jóns Steingrímssonar á Kirkjubæjarklaustri