Yfirlit frétta

Viltu losna við bílhræ eða brotajárn?

Næstu viku, viku 37, dagana 14.-17.sept nk. verða Hringrásarmenn á urðunarsvæðinu á Klaustri til að hreinsa upp brotajárn, bílhræ og aflögð tæki.

Handavinnukvöld á bókasafninu

Hittumst á fimmtudagskvöldið kl. hálfátta. Í vetur ætlum við að hittast á bókasafninu annað hvert fimmtudagskvöld frá kl.19.30-22.00. Byrjum þann 9. sept 2021.

Hvað segir Anton Kári um sameiningu?

Hér er stutt myndband þar sem Anton Kári segir sína skoðuna á sameiningu sveitarfélaganna.

Skaftárhlaup úr báðum kötlum

Hlaup hófst úr vestari katlinum í Skaftárjökli í byrjun september og náði hlaupið hámarki 2. september. Nú er hafið hlaup úr eystri katlinum og er hætta á að það verði mun stræra en hitt semvar að ljúka. Mikið vatn er í ám og því líklegt að Skaftá verði mjög vatnsmikil. Einnig þurfa menn að vara sig á að gasmengun getur fylgt Skaftárhlaupum.

Icelandic courses in Klaustur

Icelandic course start in Kirkjubæjarklaustur Frá | From 14.09.2021 17:00 til | until 19.11.2021 19:00

Íbúafundur, sameiningarmál 13. sept kl. 20:00

Íbúafundur í Skaftárhreppi vegna sameiningar sveitarfélaganna verður í félagsheimilinu Kirkjuhvoli mánudaginn 13. september, kl 20:00

Spurðu spurninga um sameiningu sveitarfélaga

Kosið verður um sameiningu sveitarfélaganna fimm á Suðurlandi eftir 25. september 2021. Á vefnum svsudurland.is getur þú spurt spurninga eða lesið svörin við spurningunum sem búið er að spyrja.

Tónlistarskólinn hefst 3. sept

Munið að skrá ykkur í tónlistarskólann sem allra fyrst. Kennsla hefst 3. september 2021.

Íbúafundur 2. sept 2021

Íbúafundur vegna tillögu um stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs verður haldinn í Kirkjuhvoli fimmtudagskvöldið 3. september 2021 klukkan 20. Allir hvattir til að koma og kynna sér málin.

Kaffihúsið lokar yfir veturinn

Síðasti séns til að ná sér í kaffibolla og tertu hjá Eyrúnu á Fossi á Síðu er föstudaginn 27. ágúst 2021. Kaffihúsið lokar í vetur en vonandi opnar það aftur þegar fer að vora. (Allar ljósm. LM)